Þátttakendur byrja á að læra helstu grunnatriði í WordPress til að gera þeim kleift að hanna vefsíðu á eigin vefsvæði (opið svæði). Síðan vinna þátttakendur að þróun vefsíðunnar í gegnum skipulagt ferli, allt frá markmiðasetningu og hönnun yfir í efnisgerð, uppsetningu og ítrun.